Tilgreind séreignardeild
Iðgjöld
Eðlismunur er á þeim réttindum sem ávinnast í samtryggingu annars vegar og í tilgreindri séreign hins vegar. Valkostirnir eru báðir góðir, hver sjóðfélagi ætti að meta hvort hann kýs fremur, aukna tryggingavernd sem felst í samtryggingunni eða aukinn sveigjanleika hvað varðar útgreiðslu og erfanleika, sem felst í tilgreindri séreign.
Þess ber þó að geta að einungis er hægt að greiða í tilgreinda séreignardeild af þeim launum þar sem kjara- eða ráðningarsamningar mæla fyrir um slíkt, því er þetta almennt ekki enn valkostur fyrir starfsmenn ríkis eða sveitarfélaga.
Á árinu greiddu 562 sjóðfélagar í tilgreinda séreignardeild Stapa, að auki sendu um 2.400 sjóðfélagar slík iðgjöld til annarra sjóða. Alls framvísuðu um 3.000 sjóðfélagar hluta af iðgjaldi sínu í tilgreinda séreign, þ.e. rúmlega 13% af virkum sjóðfélögum tryggingadeildar.
Greiðslur iðgjalda til tilgreindrar séreignardeildar Stapa hækkuðu lítillega frá fyrra ári og námu iðgjöld samtals 220 m.kr. sem er hækkun um 3% frá árinu á undan. Iðgjöld send til annarra sjóða námu 598 m.kr samanborið við 325 m.kr. á árinu 2023.
Lífeyrir
Á árinu 2024 fengu 45 sjóðfélagar greiðslu úr tilgreindri séreignardeild, flestir þeirra voru sjóðfélagar 62 ára eða eldri en 2 yngri aðilar fengu greiddan út arf. Heildargreiðslur lífeyris námu 27,5 m.kr. samanborið við rúmlega 28 m.kr. árið áður.
Hefja má úttekt úr tilgreindri séreign við 62 ára aldur og skulu greiðslur að lágmarki dreifast fram til 67 ára aldurs. Einnig er hægt að sækja um útgreiðslu ef rétthafi verður að hætta störfum vegna örorku áður en hann nær 62 ára aldri, eða vegna andláts sjóðfélaga. Við andlát rétthafa öðlast erfingjar hans rétt til innstæðunnar eftir reglum erfðalaga.