Fara í efni

Fjárfestingarstefna sjóðsins fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir aukningu erlendra eigna í öllum deildum, að undanskyldu innlánasafni. Samhliða lækkun vaxta innanlands og erlendis er ljóst að auka þarf hlutfall ávöxtunareigna (hlutabréfa) til að ná fram ávöxtunarmarkmiði sjóðsins til lengri tíma.

Áfram er unnið að því að auka dreifingu eignasafnsins innanlands og erlendis. Í því sambandi má benda á að opnað er á fjárfestingu í sértryggðum skuldabréfum (önnur markaðsskuldabréf) fyrir séreignarsöfnin ásamt því að hefjast handa við að fjárfesta í erlendum skuldabréfum.

 

Helstu upplýsingar úr fjárfestingarstefnu

  Tryggingadeild Séreignardeild Varfærna safnið

Séreignardeild Áræðna safnið

Séreignardeild Innlána safnið Tilgreind séreignardeild Varfærna safnið
Ríkisskuldabréf 20,0% 35,0% 25,0% 0,0% 35,0%
Önnur markaðsskuldabréf 19,5% 18,0% 10,0% 0,0% 18,0%
Veðskuldabréf og fasteignir 8,5% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0%
Innlend hlutabréf 15,0% 20,0% 25,0% 0,0% 20,0%
Erlend skuldabréf 6,0% 5,0% 5,0% 0,0% 5,0%
Erlend hlutabréf 23,0% 15,0% 25,0% 0,0% 15,0%
Sérhæfðar erl. fjárfestingar 8,0% 0,0% 0,0% 0% 0%
Skammtímabréf og Innlán 0,0% 2,0% 2,0% 100,0% 2,0%
Samtals 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0%

Stærð (m. kr)

286.787 1.950 4.956 467 307
Tryggingaeignir 54,0% 60,0% 47,0% 100% 60,0%
Ávöxtunareignir 46,0% 40,0% 53,0% 0,0% 40,0%
Erlendar eignir 37,0% 25,0% 33,0% 0,0% 25,0%

 

Nánari upplýsingar um fjárfestingarstefnu Stapa