Skilvirkur rekstur en ávöxtun undir markmiði
Árið einkenndist af traustum rekstri og áframhaldandi vexti Stapa þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður og lakari ávöxtun en árið áður. Hrein eign tryggingadeildar hækkaði um 7% og nam 462 milljörðum króna í árslok, en í árslok voru sjóðfélagar yfir 100.000 talsins. Á árinu greiddu tæplega 17.000 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins sem námu tæplega 21 milljarði króna. Lífeyrisgreiðslur hækkuðu í takt við fjölgun lífeyrisþega og hærri meðallífeyri nýrra lífeyrisþega og námu tæpum 14 milljörðum króna. Rekstrarkostnaður var áfram hóflegur eða um 0,14% af meðalstöðu eigna sjóðsins, sem er í samræmi við hlutfall mun stærri sjóða.
Öfundsverð tryggingafræðileg staða
Réttindakerfi Stapa er einstakt í hópi íslenskra lífeyrissjóða. Verðmæti óúrskurðaðra réttinda sveiflast í takti við ávöxtun eigna sjóðsins, ekki reiknaða ávöxtun eins og hefðbundið er hjá öðrum lífeyrissjóðum. Þannig getur Stapi velt ávöxtun beint út í réttindi sjóðfélaga án þess að taka þurfi ákvarðanir um slíkt á ársfundum. Fyrirkomulagið kemur þannig í veg fyrir að misgengi á milli reiknaðrar raunávöxtunar og raunverulegrar ávöxtunar myndi gjá á milli þess sem er lofað er í lífeyri og þess sem raunverulega er til af eignum. Af þessum sökum hefur jafnvægi milli eigna og skuldbindinga verið gott frá því að réttindakerfið var tekið upp árið 2016 þrátt fyrir miklar sveiflur í ávöxtun og upptöku lækkandi dánartíðni í réttindatöflur sjóðsins hefur ekki komið til þess að ársfundur hafi þurft að taka ákvörðun um aukningu eða lækkun réttinda.
Þá leiddi tryggingafræðileg athugun í ljós að sjóðurinn á 30 milljarða króna meira af eignum en sem nemur skuldbindingum, eða sem nemur ríflega 4%. Sú staða er líklega mesta svigrúm sem íslenskur lífeyrissjóður hefur í dag og endurspeglar sveigjanleika réttindakerfis Stapa.
Fyrirkomulag örorkulífeyris þarfnast yfirvegaðrar heildarendurskoðunar
Frá því að lífeyriskerfið sem við þekkjum í dag hóf að mótast með kjarasamningum árið 1969 hefur örorkulífeyrir verið hluti af tryggingarvernd lífeyrissjóða. Í upphafi námu greiðslur almannatrygginga aðeins broti af launum verkamanna og því skiljanlegt að aðilar vinnumarkaðarins hafi viljað tryggja kjör þeirra sem falla út af vinnumarkaði með tryggari hætti. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar og kerfin tekið miklum breytingum.
Örorkulífeyrir almannatrygginga hækkaði mikið eins og réttindi í lífeyrissjóðum sem veittu rétt til örorkulífeyris, sem er jákvæð þróun. En þessi þróun hefur haft ákveðin vandkvæði í för með sér sem kallar á heildarendurskoðun á fyrirkomulagi örorkulífeyris á íslenskum vinnumarkaði. Tekjutengingar almannatrygginga og lífeyrisþak lífeyrissjóða veldur víxlverkunum milli kerfanna með tilheyrandi óþægindum og óvissu fyrir lífeyrisþega. Bráðabirgðaákvæði sem komið var á til að milda áhrifin veltir sífellt auknum birgðum á lífeyrissjóði. Ákvæðið átti upphaflega að gilda í þrjú ár meðan unnið yrði að langtímalausn en heldur nú í ár upp á 15 ára afmælið sitt í fullri virkni.
Örorkubyrði er einnig ólík milli sjóða og skerðir getu sjóða eins og Stapa til að greiða eftirlaun. Í dag gera áætlanir ráð fyrir að fyrir sama iðgjald skili allt að 15% lakari lífeyri hjá Stapa en sjóði sem býr við lága örorku. Þetta er auðvitað óréttlæti sem stofnaðilar kerfisins sem við þekkjum í dag sáu ekki fyrir og brýnt er að vinna bug á.
Undir lok síðasta árs bárust fregnir af því að ASÍ og SA hefðu hafið viðræður um þann hluta kjarasamning um lífeyrismál sem snýr að örorkulífeyri og endurhæfingu. Sú endurskoðun er löngu tímabær og nauðsynleg. Við bindum vonir við að niðurstöður aðila vinnumarkaðarins og aðkoma fjármála- og efnahagsráðuneytisins verði til þess að færsæl niðurstaða fáist í þessu málefni sem komið er í öngstræti.
Sjóðfélagalán
Sjóðfélagalán héldu áfram að vaxa sem hlutfall af eignasafni Stapa á árinu, en samtals voru veitt fleiri en 300 lán fyrir um 12 milljarða króna á árinu sem er nálægt tvöföldun frá fyrra ári. Mikilvægi eignaflokksins fer vaxandi fyrir Stapa en hann veitir sjóðnum stöðuga og örugga ávöxtun og hefur þá ánægjulegu hliðaráhrif að gefa sjóðfélögum okkar kost á hagstæðum valkosti í fasteignalánum. Enn er rými fyrir frekari vöxt eignaflokksins í safni sjóðsins og bindum við því vonir um áframhaldandi kröftugan vöxt á næstu árum.
Engar umbætur vegna hárra þóknana tryggingamiðlara
Undanfarin ár hefur Stapi reynt að vekja athygli sjóðfélaga, fjármálaeftirlitsins, fjármálaráðuneytisins og annarra hagaðila á háum þóknunum og ágengu markaðsstarfi tryggingamiðlara við sölu á lífeyristryggingum þýskra tryggingarfélaga. Lífeyristryggingarnar eru til dæmis seldar sem tilgreind séreign þar sem rúmlega fjórðungur iðgjalds fyrstu fimm árin eru tekin af í svokallaðan upphafskostnað.
Í desember síðastliðnum fjallaði fréttaskýringarþátturinn Kveikur um málið og fletti ofan af óábyrgum starfsháttum tiltekinna vátryggingarmiðlara. Miðað við þær upplýsingar sem komu fram í umfjölluninni áttum við ekki von á öðru en að eftirlitsaðilar mundu grípa til róttækra aðgerða og eftirspurn eftir þessum dýru afurðum mundi hjaðna. Önnur varð raunin. Einu sjáanlegu viðbrögð eftirlitaðilans voru uppfærðar upplýsingar um lífeyristryggingar á heimasíðu Seðlabankans. Nýskráningar samninga hófust aftur af sama krafti um mánuði eftir umfjöllunina. Málið er því enn galopið þrátt fyrir að flett hafi verið ofan af óábyrgum starfsháttum og engar umbætur í augsýn. Stapi mun halda áfram að fylgja málinu eftir af sama eldmóð og áður.
Árangursríkt starfsár
Á starfsárinu fundaði stjórn Stapa 14 sinnum, þar af einu sinni á sérstökum vinnufundi vegna mótunar fjárfestingarstefnu. Samstarf í stjórn hefur gengið ljómandi vel. Stjórnarmenn koma með fjölbreytta þekkingu og ólíkan bakgrunn að borðinu og sinna störfum sínum af heilindum og metnaði. Vil ég þakka þeim sérstaklega fyrir árangursríkt samstarf á árinu.
Að lokum vil ég fyrir hönd stjórnar þakka sjóðfélögum og öðrum hagaðilum samstarfið á árinu sem og starfsfólki Stapa fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf. Starfsfólki Stapa þakka ég einnig fyrir sérstaklega fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf. Það má með sanni segja að Stapi búi yfir miklum auði í sínu starfsfólki, þeim þakka ég sérstaklega fyrir vel unnin störf og aðstoð á starfsárinu.
Björn Snæbjörnsson, stjórnarformaður