Lykiltölur
Eignasamsetning
Í árslok 2025 voru verðbréfaeignir varfærna séreignarsafnsins, metnar á markaðsvirði, 2.790 m.kr. samanborið við 2.652 m.kr. árið áður. Helstu breytingar á eignasamsetningu milli ára eru þær að erlend hlutabréf jukust um hátt í 2% á kostnað innlendra hlutabréfa.
Verðbréfaeignir áræðna séreignasafnsins, metnar á markaðsvirði, námu um 7.210 m.kr. samanborið við 6.648 m.kr. árið áður.
Helstu breytingar á eignasamsetningu eru þær að aukið var við önnur markaðsskuldabréf og erlend hlutabréf á kostnað innlendra hlutabréfa.
Þriðja safnið er innlána séreignarsafnið sem er minnsta safnið en heildareign þess nam um 365 m.kr. í árslok.
Varfærna safnið
|
|
2025 |
2025 |
2024 |
2024 |
| Ríkisskuldabréf | 590 | 21% | 566 | 21% |
| Önnur markaðsskuldabréf | 573 | 21% | 547 | 21% |
| Innlend hlutabréf | 499 | 18% | 527 | 20% |
| Erlend skuldabréf | 102 | 4% | 105 | 4% |
| Erlend hlutabréf | 964 | 35% | 876 | 33% |
| Skammtímabréf og innlán | 61 | 2% | 31 | 1% |
| Samtals | 2.790 | 100% | 2.652 | 100% |
Áræðna safnið
|
2025 |
2025 |
2024 |
2024 |
|
| Ríkisskuldabréf | 1.191 | 17% | 1.108 | 17% |
| Önnur markaðsskuldabréf | 1.110 | 15% | 809 | 12% |
| Innlend hlutabréf | 1.497 | 21% | 1.544 | 23% |
| Erlend skuldabréf | 292 | 4% | 300 | 5% |
| Erlend hlutabréf | 2.982 | 41% | 2.687 | 40% |
| Skammtímabréf og innlán | 138 | 2% | 200 | 3% |
| Samtals | 7.210 | 100% | 8.648 | 100% |
Fjárfestingartekjur og ávöxtun
Hreinar fjárfestingartekjur séreignadeildar voru jákvæðar um 597 m.kr. á árinu samanborið 1.201 m.kr. á árinu 2024. Hrein eign séreignardeildar nam alls 10.397 m.kr. í lok ársins samanborið við 9.700 m.kr. í lok ársins 2024.
Ávöxtun varfærna safnsins var yfir viðmiði meðan áræðna safnsins var rétt undir viðmiðunarvísitölum. Nafnávöxtun varfærna safnsins var 6,0%
sem er 0,1% yfir viðmiði og nafnávöxtun áræðna safnsins var 5,7% samanborið við 5,9% ávöxtun viðmiðunarvísitölu. Helsta skýring á mismun í ávöxtun er vægi hlutabréfa í viðkomandi söfnum. Innlána safnið skilaði ávöxtun umfram viðmiði, sem má rekja til hárra innlánskjara á tímabilinu.