Fjárfestingarstefna Stapa fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að vægi erlendra eigna í tryggingadeild lækki um 1% frá fyrra ári. Áætlað er að minnka vægi erlendra skuldabréfa og auka á móti eign í innlendum skuldabréfum.
Hlutfall ávöxtunareigna (hlutabréfa) helst óbreytt í 51% á móti 49% vægi tryggingareigna (skuldabréfa).
Þrátt fyrir að ekki sé gert ráð fyrir aukningu í hlutfalli erlendra eigna ´a árinu 2026 er áfram gert ráð fyrir að erlendar eignir nálgist 50% á næstu árum sem er í samræmi við langtímamarkmið stjórnar.
Gerðar voru breytingar á varfærnu séreignasöfnunum þess efnis að vægi tryggingareigna er aukið milli ára og verður í nýrri stefnu 60% af heildareignum í stað 50%.
|
Tryggingadeild |
Séreignardeild Varfærna safnið |
Séreignardeild Áræðna safnið |
Séreignardeild Innlána safnið |
Tilgreind séreignardeild Varfærna safnið | |
| Ríkisskuldabréf | 13% | 27% | 17% | 0% | 27% |
| Önnur markaðsskuldabréf | 21% | 26% | 17% | 0% | 26% |
| Veðskuldabréf og fasteignir | 10% | 0% | 0% | 0% | 0% |
| Innlend hlutabréf | 15% | 13% | 20% | 0% | 13% |
| Erlend skuldabréf | 4% | 6% | 5% | 0% | 6% |
| Erlend hlutabréf | 32% | 27% | 40% | 0% | 27% |
| Aðrar erlendar fjárfestingar | 4% | 0% | 0% | 0% | 0% |
| Innlán | 1% | 1% | 1% | 100% | 1% |
| Samtals | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% |
| Stærð í m.kr. þann 31.12.2025 | 448.271 | 2.790 | 7.210 | 365 | 1.133 |
| Tryggingaeignir | 49% | 60% | 40% | 100% | 60% |
| Ávöxtunareignir | 51% | 40% | 60% | 0% | 40% |
| Erlendar eignir | 40% | 33% | 45% | 0% | 33% |