Lykiltölur
Tilgreinda varfærna safnið
Ein fjárfestingarleið er í boði í tilgreindri séreignadeild, tilgreinda varfærna safnið, sem er með sömu fjárfestingastefnu og varfærna séreignarsafnið. Verðbréfaeignir safnsins í árslok 2025, metnar á markaðsvirði, námu 1.133 m.kr. samanborið við 900 m.kr. árið áður.
Safnið er að stækka töluvert milli ára, innflæði í deildina var um 151 m.kr. á árinu eða um 16%. Helstu breytingar á safninu milli ára voru þær að aukið var við vægi innlendra skuldabréfa úr 43% í 45% og vægi erlendra eigna hækkaði um 1%.
Eignasamsetning
|
2025 |
2025 |
2024 |
2024 |
|
| Ríkisskuldabréf | 262 | 23% | 178 | 20% |
| Önnur markaðsskuldabréf | 254 | 22% | 208 | 23% |
| Innlend hlutabréf | 208 | 19% | 181 | 20% |
| Erlend skuldabréf | 47 | 4% | 50 | 6% |
| Erlend hlutabréf | 341 | 30% | 243 | 27% |
| Skammtímabréf og innlán | 22 | 2% | 40 | 4% |
| Samtals | 1.133 | 100% | 900 | 100% |
Fjárfestingartekjur og ávöxtun
Hreinar fjárfestingartekjur tilgreindrar séreignardeildar voru 65 m.kr. á árinu samanborið við 98 m.kr. á árinu 2024. Hrein eign deildarinnar var 1.314 m.kr. samanborið við 1.064 m.kr. að stærð í lok árs 2024 en nettó innflæði á árinu nam um 250 m.kr.
Vegna smæðar tilgreindrar séreignardeildar í heild er einungis í boði sem stendur að ráðstafa sparnaði í tilgreinda varfærna safnið.
Nafnávöxtun tilgreindrar séreignar var 5,6% á árinu 2025, sem er undir viðmiði sem var 5,9%
Þar sem deildin er í hraðri uppbyggingu og innflæði er hlutfallslega hátt í hverjum mánuði geta miklar verðsveiflur á markaði verið að einhverju leiti komnar fram þegar inngreiðslur eru að skila sér. Þetta getur leitt til sveiflna í ávöxtun samanborið við viðmið.
*Tilgreind séreignardeild var stofnuð árið 2017 og því eru ekki til eldri tölur um ársávöxtun.