Fara í efni
ma. kr.
Iðgjöld
ma. kr.
Lífeyrisgreiðslur
þúsund
Fjöldi sjóðfélaga
Þúsund
Lífeyrisþegar
Þúsund
Launagreiðendur

Iðgjöld

Alls greiddu 22.852 sjóðfélagar iðgjöld til tryggingadeildar á árinu 2025. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í hverjum mánuði voru 16.887. Iðgjöld ársins án tillits til framlags ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði, námu 19.866 m.kr. og hækkuðu um 5,8 % frá fyrra ári.

Meðalaldur greiðenda og aldursamsetning var svipuð og fyrri ár. Stærsti aldurshópurinn var fólk á bilinu 21-30 ára. Karlar eru 55% greiðenda og konur 45%.

Hlutur sjávarútvegs, verslunar og þjónustu og úrvinnslu landbúnaðar og óx hlutfallslega mest en hlutfall iðnaðar minnkar.

  2025 2024 Breyting %
Iðgjöld í m.kr. 19.866 18.785 5,8%
Meðalfjöldi greiðandi sjóðfélaga 16.887 16.548 2,1%
Heildarfjöldi greiðandi sjóðfélaga 22.852 22.643 0,9%
Fjöldi launagreiðenda 4.067 3.869 5,1%
 
Ársskýrsla Stapa

 

 
Ársskýrsla Stapa

 


 
Ársskýrsla Stapa

 
Ársskýrsla Stapa

Fara efst á síðu

Lífeyrisgreiðslur

Lífeyrisgreiðslur tryggingadeildar námu alls 13.226 m.kr. og hækkuðu um 10,5% frá fyrra ári. Á árinu fékk sjóðurinn greiddar 657 m.kr. úr ríkissjóði vegna jöfnunar á örorkubyrði milli lífeyrissjóða og lækkaði framlagið um 11,5% frá fyrra ári. Framlagið jafngildir um 22% af greiddum örorkulífeyri frá sjóðnum. Lífeyrisbyrði sjóðsins sem hlutfall af iðgjöldum, var 65% samanborið við 62% á árinu 2024.

Á árinu hófu 763 sjóðfélagar töku mánaðarlegra eftirlauna, 376 einstaklingar fengu úrskurðaðan örorkulífeyri, 151 mánaðarlegan makalífeyri og 105 barnalífeyri.

Þá fengu 1115 einstaklingar eingreiðslu lífeyris þar sem um lítil réttindi var að ræða, fjöldinn var mjög svipaður og á árinu 2024. Meðalfjöldi lífeyrisþega í hverjum mánuði var 13.466 og fjölgaði um 442 frá fyrra ári eða um 3%.

Algengast er að sjóðfélagar hefji töku eftirlauna við 67 ára aldur en 194 af þeim eru að flytjast af örorku yfir á eftirlaun. Stór hópur byrjar einnig við 65 ára aldur, sbr. mynd. Áhugavert er að skoða eftirlaunatöku eftir árgöngum. Um 25% af þeim sem urðu 64 ára árinu 2025 hafa þegar hafið töku eftirlauna í lok árs 2025. Um 71% þeirra sem urðu 67 ára á árinu 2025 hafa þegar hafið töku eftirlauna, í lok árs 2025.

 
Ársskýrsla Stapa

 

 
Ársskýrsla Stapa

 


 
Ársskýrsla Stapa

 

 
Ársskýrsla Stapa

 


 
Ársskýrsla Stapa

Fara efst á síðu