Iðgjöld
Eðlismunur er á þeim réttindum sem ávinnast í samtryggingu annars vegar og í tilgreindri séreign hins vegar. Valkostirnir eru báðir góðir, hver sjóðfélagi fyrir sig ætti að meta hvort hann kýs fremur, aukna tryggingavernd sem felst í samtryggingunni eða aukinn sveigjanleika hvað varðar útgreiðslu og erfanleika, sem felst í tilgreindri séreign.
Á árinu greiddu 588 sjóðfélagar í tilgreinda séreignardeild Stapa, að auki sendu um 3.100 sjóðfélagar slík iðgjöld til annarra sjóða.
Alls framvísuðu því um 3.700 sjóðfélagar hluta af iðgjaldi sínu í tilgreinda séreign, þ.e. rúmlega 16% af virkum sjóðfélögum tryggingadeildar.
Greiðslur iðgjalda til tilgreindrar séreignardeildar Stapa hækkuðu lítillega frá fyrra ári og námu iðgjöld samtals 230 m.kr. sem er hækkun um 5% frá árinu á undan. Iðgjöld send til annarra sjóða námu 834 m.kr samanborið við 598 m.kr. á árinu 2024.
Lífeyrir
Hefja má úttekt úr tilgreindri séreign við 62 ára aldur og skulu greiðslur að lágmarki dreifast fram til 67 ára aldurs. Einnig er hægt að sækja um útgreiðslu ef rétthafi verður að hætta störfum vegna örorku áður en hann nær 62 ára aldri, eða vegna andláts sjóðfélaga. Við andlát rétthafa öðlast erfingjar hans rétt til innstæðunnar eftir reglum erfðalaga.
Á árinu 2025 fengu 57 sjóðfélagar greiðslur úr tilgreindri séreignardeild, flestir þeirra voru sjóðfélagar 62 ára eða eldri en 5 yngri aðilar fengu greiddan út arf. Heildargreiðslur lífeyris námu 40 m.kr. samanborið við 28 m.kr. árið áður.