Sjálfbærnivegferð Stapa
Stapi hefur valið sér áherslur í sjálfbærni sem eru mótaðar af UFS viðmiðum Nasdaq og mun sjóðurinn koma til með að birta sjálfbærniuppgjör og árangur sinn hvað þau varðar í þar til gerðri skýrslu samhliða árlegu fjárhagsuppgjöri sjóðsins.
Nýjar sjálfbærnireglugerðir Evrópusambandsins (ESB) hafa nú þegar tekið gildi hér á landi og má þar nefna Flokkunarreglugerð ESB (EU Taxonomy) og reglugerð um sjálfbærniupplýsingagjöf á sviði fjármálaþjónustu, eða EU Sustainable Finance Disclosure Regulation (SFDR). Líklegt er að CSRD tilskipunin (Corporate Sustainability Reporting Directive), sem gildir fyrir stór og skráð fyrirtæki sem tók gildi fyrir fjárhagsárið 2025.
Með tilkomu nýs regluverks munu eftirlitsstofnanir móta stefnu og verklag um hvernig eftirliti verður háttað í samræmi við vaxandi kröfur um umhverfis-og samfélagslega þætti sem og bætta stjórnarhætti við fjárfestingaákvarðanir og áhættumat eftirlitsskyldra aðila.
Markmið Stapa er að reksturinn verði til fyrirmyndar í íslensku atvinnulífi, ekki einungis hvað varðar ávöxtun og hagkvæmni heldur jafnframt þegar kemur að UFS viðmiðum í rekstri Stapa:
- ·Umhverfisleg viðmið taka á því hvernig Stapi mun vinna meðvitað í því að draga úr neikvæðum umhverfislegum áhrifum í starfseminni samhliða því að vinna að verkefnum í þágu umhverfisins.
- Félagsleg viðmið fjalla um það hvernig hugað er að velferð og heilsu starfsfólks, stuðla að heilbrigðu og jákvæðu starfsumhverfi, leggja áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti ásamt því að styðja við sitt nær samfélag og huga að sínum hagaðilum.
- Viðmið um góða stjórnarhætti taka á áherslum Stapa þegar kemur að því að viðhalda góðu viðskiptasiðferði, huga að innra eftirliti, almennum stjórnarháttum og huga að réttindum sjóðfélaga.
Umhverfi
Stapi leggur áherslu á umhverfismál í rekstri sjóðsins í samræmi við ofangreind markmið til að sýna gott fordæmi og leggja sitt af mörkum og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af rekstri sjóðsins sem mest má og hefur sjóðurinn skuldbundið sig til neðangreindra aðgerða.
Sem fjárfestir mun Stapi leitast við að greina möguleg áhrif loftslagsbreytinga á eignasafn sitt og þau áhrif sem félagið getur haft á loftslagsbreytingar í gegnum það, einsetja sér að lágmarka áhrifin og hefur sjóðurinn sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar þess efnis.
| UFS | Þáttur | Heimsmarkmið | Lýsing á heimsmarkmiði | Aðgerðir 2026 |
|
Umhverfisþættir
|
Minnka kolefnisspor í rekstri sjóðsins |
![]() |
Gripa til bráðra aðgerða gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra |
|
|
Umhverfisþættir
|
Flokkun á sorpi , endurvinnsla og endurnýting |
|
Sjálfbær neyslu og framleiðslumynstur verði tryggð |
|
Félagslegir þættir
Stapi leggur áherslu á að stuðla að velferð starfsfólks og að tryggja heilnæmt starfsumhverfi. Stapi leggur áherslu á sýna gott fordæmi í rekstri sjóðsins í samræmi við markmið með því að tryggja velferð starfsfólks s.s. með viðeigandi stefnum og viðbragðsáætlunum í öryggis-, jafnréttis- og félagsmálum. Með fyrirbyggjandi aðgerðum, forvörnum og fræðslu vill sjóðurinn sporna gegn mismunun og koma í veg fyrir einelti, kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi.
Sjóðurinn hefur sett sér neðangreind markmið og aðgerðir á þessu sviði. Til að styðja við markmiðin, hefur Stapi sett sér mannauðsstefnu, siðareglur starfsmanna og aðgerðaráætlun gegn einelti, kynferðislegu og kynbundnu áreitni og ofbeldi.
|
UFS |
Þáttur |
Heimsmarkið |
Lýsing á heimsmarkmiði |
Aðgerðir 2026 |
|
Félagslegir þættir
|
Jafnrétti og fjölbreytileiki á vinnustað |
|
Draga úr ójöfnuði innan og á milli landa |
|
|
Félagslegir þættir
|
Heilsa og örugg vinnuskilyrði |
|
Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla. Stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan fyrir alla frá vöggu til grafar |
|
Stjórnarhættir
Stapi er eftirlitsskyldur aðili og fylgir viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulífsins.
Stjórn Stapa leggur áherslu á góða stjórnarhætti og að þróa þá stöðugt og styrkja í samræmi við ofangreind markmið. Stapi einsetur sér jafnframt að stjórnarhættir samræmist þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda. Með góðum stjórnarháttum leggur Stapi grunn að traustum samskiptum stjórnenda, starfsfólks, sjóðsfélaga og annarra hagsmunaaðila, og stuðlar að hlutlægni, heilindum, gagnsæi og ábyrgð í stjórnun sjóðsins.
Fjölmargar stefnur styðja við stjórnarhætti Stapa, s.s. persónuverndarstefna, starfsreglur stjórnar, starfskjarastefna, stjórnarháttayfirlýsing, áhættustefna, stefna um ábyrgar fjárfestingar, verklagsreglur um hæfi lykilstarfsmanna, reglur um uppljóstranir, siðareglur og reglur um kvartanir.
Stjórn hefur sett starfsreglur sem ramma inn stjórnarhætti sjóðsins. Sem liður í því, hefur Stapi einsett sér að leggja áherslu á neðangreind markmið og aðgerðir.
|
UFS |
Þáttur | Heimsmarkmið | Lýsing á heimsmarkmiði | Aðgerðir 2026 |
|
Stjórnarhættir
|
Netöryggi og öryggi gagna |
![]() |
Stuðla að friðsælum og sjálfbærum samfélögum fyriri alla, tryggja öllum jafnan aðgang aðréttarkerfi og byggja upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir fyrir alla. |
|
|
Stjórnarhættir
|
Orðspor og ímynd |
|
Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla. |
|






