Á árinu urðu ýmsar breytingar í starfsumhverfi Stapa, bæði vegna laga- og reglugerðarbreytinga og uppfærðrar þjónustu sjóðsins.
Nýr launagreiðendavefur var innleiddur og hefur mælst vel fyrir. Hann býður betri yfirsýn og virkni, m.a. að sækja hreyfingayfirlit, prenta út skilagreinar og óska rafrænt eftir leiðréttingum eða skuldleysisvottorðum.
Heimild til að nýta séreignarsparnað skattfrjálst inn á húsnæðislán var framlengd til ársloka 2025 en hefur ekki verið framlengd í sömu mynd fyrir árið 2026. Lög um skattfrjálsa nýtingu séreignar vegna fyrstu kaupa standa þó óbreytt áfram.
Nokkur umfjöllun var um tilgreinda séreign í fjölmiðlum á árinu og var sjónum þá einkum beint að söluaðferðum og háu kostnaðarhlutfalli erlendra vörsluaðila. Stapi hefur á undanförnum árum ítrekað bent á mikilvægi þess að sjóðfélagar taki upplýsta ákvörðun ef þeir velja tilgreinda séreign og vörsluaðila hennar. Mikilvægt er að velta fyrir sér bæði kostum og göllum tilgreindrar séreignar áður en ákvörðun er tekin en hætta er á því að valkostum sé lýst einhliða í tilfellum þar sem söluaðili hefur beina hagsmuni af því að samningur komist á. Einnig virðast sjóðfélagar oft vera lítið upplýstir um kostnað hjá sumum vörsluaðilum séreignar, kostnaður hjá erlendum vörsluaðilum er mun hærri en ef tilgreind séreign er ávöxtuð hjá Stapa.
Frá og með árinu 2025 hefur snemmtaka lífeyris úr lífeyrissjóði áhrif á frestunarhækkun TR. Einstaklingur fær nú ekki hækkun vegna seinkunar töku lífeyris hjá TR fram yfir 67 ára aldur, ef hann hefur byrjað hjá lífeyrissjóði fyrr. Frestunarhækkun miðar þá við upphafstöku eftirlauna úr lífeyrissjóði. Breytingin tekur til einstaklinga fæddra 1958 og síðar og mun mögulega leiða til þess að sjóðfélagar flýti síður töku lífeyris úr lífeyrissjóðum.
Frá árinu 2011 hefur verið í lögum um lífeyrissjóði bráðabirgðaákvæði, oft kallað víxlverkunarákvæði, sem bannaði lífeyrissjóðum að láta almennar hækkanir hjá TR leiða til lækkunar á örorkulífeyri hjá lífeyrissjóðunum. Nýtt kerfi almannatrygginga vegna örorkulífeyris tók gildi 1. september 2025 og samhliða féll niður bráðabirgðaákvæðið. Tekjuathugun Stapa í nóvember 2025 tók því mið af öllum greiðslum örorkulífeyrisþega frá TR og við það lækkuðu örorkulífeyrisgreiðslu margra lífeyrisþega Stapa í desember. Rétt fyrir jól var umrætt bráðabirgðaákvæði framlengt til loka árs 2026, afturvirkt frá 1. september 2025, í janúar 2026 var tekjuatugun nóvembermánaðar því endurreiknuð og greiðslur hækkuðu afturvirkt hjá þeim lífeyrisþegum áttu rétt á því. Á gildistíma núverandi bráðabirgðaákvæðis er ætlunin að finna varanlega lausn á samspili örorkulífeyris almannatrygginga og lífeyrissjóðanna.